FRAMTALSLEIÐBEININGAR 2022
7.4.1 Almennt um söluhagnað
Nauðsynlegt er að seljandi sýni útreikning söluhagnaðar eða sölutaps. Í athugasemdum þarf hann að gera grein fyrir skattalegri meðferð söluhagnaðar, þ.e.a.s. ósk um frestun skattlagningar eða dreifingu, sbr. það sem fram kemur í kafla 7.4.3. Söluhagnaður utan rekstrar telst til fjármagnstekna.
Almennt er söluhagnaður eigna skattskyldur án tillits til þess hversu lengi seljandi hefur átt eignina. Á þessu eru þó eftirfarandi undantekningar:
- Hagnaður af sölu lausafjár sem ekki er notað í atvinnurekstri er skattfrjáls nema eignanna hafi verið aflað í þeim tilgangi að selja með hagnaði.
- Hagnaður manns af sölu íbúðarhúsnæðis er skattfrjáls hafi hann átt hina seldu eign í full tvö ár eða lengur og ef heildarrúmmál íbúðarhúsnæðis/frístundahúsnæðis í eigu seljanda á söludegi er ekki meira en 600 m3 hjá einstaklingi eða 1200 m3 hjá hjónum. Ath. Frá og með tekjuárinu 2016 (framtal 2017) eiga þessi stærðarmörk varðandi takmörkun á skattfrelsi
söluhagnaðar íbúðarhúsnæðis þó ekki við, ef um er að ræða hagnað af sölu íbúðarhúsnæðis til eigin nota. - Hagnaður manns af sölu frístundahúsnæðis, sem nýtt hefur verið af eigendum og ekki verið til útleigu, er skattfrjáls hafi hann átt hina seldu eign í full sjö ár eða lengur og ef heildarrúmmál íbúðarhúsnæðis/frístundahúsnæðis í eigu seljanda á söludegi er ekki meira en 600 m3 hjá einstaklingi eða 1200 m3 hjá hjónum. Ath. Frá og með tekjuárinu 2016 (framtal 2017) eiga þessi stærðarmörk varðandi takmörkun á skattfrelsi
söluhagnaðar íbúðarhúsnæðis þó ekki við, ef um er að ræða hagnað af sölu íbúðarhúsnæðis til eigin nota. - Hagnaður af sölu tiltekinna hlutabréfa sem keypt voru á árunum 1990-1996 að vissu hámarki, sbr. það sem fram kemur um „Sérstök hlutabréf” í kafla 7.6 um kaup og sölu hlutabréfa.