7.8.5 Lækkun vegna framfærslu námsmanns
Hægt er að sækja um lækkun ef framteljandi hefur á framfæri sínu námsmann í framhaldsskóla, sem ekki hefur nægar tekjur sér til framfærslu. Hér er einkum átt við námsmenn á aldrinum 16-21 árs. Ef ungmenni er í lánshæfu námi (skv. reglum Menntasjóðs námsmanna) kemur lækkun ekki til álita.
Sótt er um með því að fylla út lið 1.3 á forsíðu skattframtals (í vefframtali er þessi liður einnig birtur sem kafli í eyðublaði RSK 3.05).
Hámarks lækkun á tekjuskatts- og útsvarsstofni við álagningu 2022 er 425.000 kr., ef námsmaður er tekjulaus. Frá þessari fjárhæð er dreginn 1/3 af tekjum námsmannsins, þannig að réttur framfæranda til ívilnunar fellur niður ef tekjurnar eru umfram 1.275.000 kr. á árinu 2021.
Ungmenni sem ekki er í námi
Sjá kafla 7.8.4 um ívilnun vegna framfærslu ungmennis sem ekki er í námi.