Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 28.3.2024 13:05:39


Ξ Valmynd

7.4.2  Söluhagnaður vegna íbúðarhúsnæðis/frístundahúsnæðis

Hagnaður af sölu íbúðarhúsnæðis/frístundahúsnæðis í eigu manns er mismunur söluverðs, þegar sölukostnaður hefur verið dreginn frá, og stofnverðs, þ.e. kostnaðar- eða kaupverðs. Þar sem ákvæði um verðleiðréttingar hafa verið felld niður úr skattalögum er aðeins heimilt að framreikna stofnverð við útreikning söluhagnaðar íbúðarhúsnæðis/frístundahúsnæðis til ársloka 2001.
 
Tvennt getur haft áhrif til lækkunar stofnverðs en það er:
  • áður fenginn söluhagnaður
  • skattfrjáls eigin vinna.
Frestun um tvenn áramót
Ef íbúðarhúsnæði/frístundahúsnæði eða búseturéttur er seldur og seljandi hefur ekki átt íbúðina/búseturéttinn í full tvö ár (sjö ár ef um frístundahúsnæði er að ræða) er söluhagnaðurinn skattskyldur. Hafi hann keypt eða hafið byggingu íbúðarhúsnæðis/frístundahúsnæðis á árinu getur hann óskað eftir að söluhagnaðurinn verði færður til lækkunar á stofnverði þess. Þetta á við um íbúðarhúsnæði/frístundahúsnæði hér á landi, á EES svæðinu, í aðildarríkjum Fríverslunarsamtaka Evrópu og í Færeyjum.  Hafi ekki verið keypt eða hafin bygging á öðru íbúðarhúsnæði/frístundahúsnæði er hægt að óska eftir frestun á skattlagningu söluhagnaðar um tvenn áramót frá söludegi.
 
Sé keypt eða hafin bygging á nýju íbúðarhúsnæði/frístundahúsnæði, í síðasta lagi á öðru ári eftir söluár, er söluhagnaðurinn ekki skattlagður en færist til lækkunar á stofnverði nýrrar íbúðar/frístundahúss. Sé stofnverð nýju eignarinnar lægra en sem nemur fjárhæð söluhagnaðar færist mismunur sem fjármagnstekjur á kaupári nýju eignarinnar. Ef eignar er ekki aflað innan tilskilins tíma færist söluhagnaðurinn með skattskyldum fjármagnstekjum á öðru ári eftir að hann myndaðist.

 

Fara efst á síðuna ⇑