FRAMTALSLEIÐBEININGAR 2020
		8.3.1 Útreikningur á tekjuskatti og útsvari
Vegna millifærslu á persónuafslætti hjá hjónum og sambúðarfólki þarf alltaf að reikna fyrst út gjöld þess sem hefur lægri tekjur.
Af fyrstu 11.125.045 kr. reiknast 22,5% tekjuskattur og af stofni umfram 11.125.045 kr. reiknast 31,8% tekjuskattur. Útsvar er breytilegt eftir sveitarfélögum. Meðaltalið var 14,44% á tekjuárinu 2019.
| Tekjuskatts- og útsvarsstofn 1) | 12.000.000 | |
| 22,5% tekjuskattur af 11.125.045 kr. + | 2.503.135 | |
| 31,8% tekjuskattur af 874.955 kr. + | 278.235 | |
| Persónuafsláttur 2) - | 677.358 | 3) | 
| Tekjuskattur = | 2.104.012 | 4) | 
| Útsvar - 14,44% af stofni 5) + | 1.732.800 | |
| Persónuafsláttur til greiðslu útsvars - | 0 | 6) | 
| Útsvar til innheimtu = | 1.732.800 | 
- Samkvæmt tölulið 2.7 á framtali.
- Persónuafsláttur vegna tekna á árinu 2019 er kr. 677.358.
- Til viðbótar venjulegum persónuafslætti getur komið millifærður persónuafsláttur frá maka, sbr. 6).
- Ef reiknaður tekjuskattur er lægri en persónuafsláttur verður tekjuskatturinn 0 en ónýttur afsláttur færist niður í línuna: Persónuafsláttur til greiðslu útsvars.
- Útsvar er mismunandi eftir sveitarfélögum.
- Ónýttur persónuafsláttur gengur til greiðslu útsvars. Sé þá enn ónýttur afsláttur gengur hann til maka hjá samsköttuðum einstaklingum. Sé enn eftir ónýttur afsláttur ganga 22/37 af því sem ónýtt er til greiðslu á skatti á fjármagnstekjur, en fellur að öðru leyti niður.