Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 26.4.2024 21:44:00


Ξ Valmynd

1.8.8  Erlendir bankareikningar og peningalegar eignir á sundurliðunarblaði


Á sundurliðunarblaðinu með skattframtali 2019 er að finna upplýsingar sem borist hafa erlendis frá um erlenda bankareikninga og aðrar erlendar peningalegar eignir, t.d. erlend hlutabréf eða verðbréf.

Listinn er hugsaður til áminningar fyrir framteljendur um að færa erlendar eignir sínar inn á skattframtal sitt.

Tekið skal fram að hér er um að ræða upplýsingar sem bárust um slíka erlendar eignir sem framteljandi átti í árslok 2017.

Framteljendur þurfa að yfirfara þennan lista og færa eftir atvikum handvirkt inn á framtalið þær erlendu eignir sem þeir áttu í árslok 2018 og fjármunatekjur af þeim á árinu 2018.

Athugið að listinn er ekki endilega tæmandi upptalning á þeim erlendu eignum sem kunna að vera í eigu framteljanda í árslok 2018!

Erlenda bankareikninga (ásamt fjárhæð eignar í árslok 2018 og fjárhæð vaxta á árinu 2018) skal færa í kafla 3.2 á fjármagnstekjuhlið.

Erlend verðbréf (ásamt fjárhæð eignar í árslok 2018 og fjárhæð vaxta á árinu 2018) skal færa í kafla 3.3 á fjármagnstekjuhlið.

Erlend hlutabréf (ásamt fjárhæð eignar í árslok 2018 og fjárhæð arðs á árinu 2018) skal færa á eyðublað RSK 3.19.

 

Fara efst á síðuna ⇑