Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 26.4.2024 08:14:23


Ξ Valmynd

8.3.1  Útreikningur á tekjuskatti og útsvari

Vegna millifærslu á persónuafslætti hjá hjónum og sambúðarfólki þarf alltaf að reikna fyrst út gjöld þess sem hefur lægri tekjur.
 
Af fyrstu 10.016.488 kr. reiknast 22,5% tekjuskattur og af stofni umfram 10.016.488 kr. reiknast 31,8% tekjuskattur. Útsvar er breytilegt eftir sveitarfélögum. Meðaltalið var 14,44% á tekjuárinu 2017.
 
Tekjuskatts- og útsvarsstofn 1)

11.000.000

 
22,5% tekjuskattur af 10.016.488 kr.             +  2.253.710  
31,8% tekjuskattur af 983.512 kr.                  +

312.757

 
Sjómannaafsláttur 2)                                     -

0

 
Persónuafsláttur 3)                                        -

634.880

4)

Tekjuskattur    =

1.931.587

5)
     
Útsvar - 14,44% af stofni 6)                         +

1.588.400

 
Persónuafsláttur til greiðslu útsvars            -

0

7)

Útsvar til innheimtu   = 

1.588.400

 
  1. Samkvæmt tölulið 2.7 á framtali.
  2. Sjómannaafsláttur féll alveg niður á tekjuárinu 2014.
  3. Persónuafsláttur vegna tekna á árinu 2017 er kr. 634.880.
  4. Til viðbótar venjulegum persónuafslætti getur komið millifærður persónuafsláttur frá maka, sbr. 7).
  5. Ef reiknaður tekjuskattur er lægri en persónuafsláttur verður tekjuskatturinn 0 en ónýttur afsláttur færist niður í línuna: Persónuafsláttur til greiðslu útsvars.
  6. Útsvar er mismunandi eftir sveitarfélögum.
  7. Ónýttur persónuafsláttur gengur til greiðslu útsvars. Sé þá enn ónýttur afsláttur gengur hann til maka hjá samsköttuðum einstaklingum. Sé enn eftir ónýttur afsláttur ganga 20/37 af því sem ónýtt er til greiðslu á skatti á fjármagnstekjur, en fellur að öðru leyti niður.

 

 

Fara efst á síðuna ⇑