Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 20.4.2024 03:09:55


Ξ Valmynd

7.3.2  Frádráttur frá dagpeningum erlendis

Frádráttur frá dagpeningum erlendis, tekjuárið 2014:

Flokkur 1:
Moskva, Singapúr, New York borg, Tókýó, Washington DC

  Almennir dagpeningar Dagpeningar vegna þjálfunar, náms eða eftirlitsstarfa
    Gisting Annað Gisting Annað
Jan.-nóv. SDR 187 125 120 80
Desember SDR 208 125 133 80

Flokkur 2:
Dublin, Istanbúl, Japan (nema Tókýó), London, Lúxemborg, Mexíkóborg, Seúl
    Gisting Annað Gisting Annað
Jan.-nóv. SDR 159 106 102 67
Desember SDR 177 106 113 67

Flokkur 3:
Amsterdam, Aþena, Bandaríkin (nema New York borg og Washington DC), Helsinki, Barselóna, Brussel, Genf, Hong Kong, Kanada, Kaupmannahöfn, Madrid, Osló, París, Róm, Stokkhólmur, Vín
    Gisting Annað Gisting Annað
Jan.-nóv. SDR 141 94 90 60
Desember SDR 156 94 100 60

Flokkur 4:
Aðrir staðir
    Gisting Annað Gisting Annað
Jan.-nóv. SDR 125 83 80 54
Desember SDR 139 83 89 54
 
Þegar dagpeningar eru umreiknaðir í íslenskar krónur skal miðað við sölugengi eins og það var í lok ferðar. Gengi má finna á www.sedlabanki.is.
 
Almennir dagpeningar - þrjár vikur eða lengur
Sé dvalist skemur en þrjár vikur á sama stað skal draga frá fulla almenna dagpeninga.
 
Sé dvalist þrjár vikur eða lengur á sama stað breytist leyfilegur frádráttur þannig að heimilt er að færa fulla dagpeninga til frádráttar fyrstu vikuna en eftir það lækkar fjárhæðin og verður sú sama og dagpeningar vegna þjálfunar, náms eða eftirlitsstarfa.
 
Þjálfun, nám eða eftirlitsstörf í þrjá mánuði eða lengur
Fari dvöl erlendis vegna þjálfunar, náms eða eftirlitsstarfa fram úr þremur mánuðum skal frádráttur á móti dagpeningum lækka um 25% þann tíma sem dvalist er erlendis umfram þrjá mánuði.
 
Vinna erlendis
Sé dvöl launþega erlendis vegna tímabundinna starfa þar á vegum íslensks launagreiðanda, eiga reglur um frádrátt á móti dagpeningum vegna ferðalaga ekki við. Honum er þá heimilt að draga frá sérgreindum greiðslum, sem hann kann að hafa fengið vegna uppihalds í allt að 3 ár, fjárhæð sem hæst getur orðið 30 SDR á dag. Skiptir ekki máli í þessu sambandi þó launþegi komi í stuttar heimsóknir hingað til lands á umræddu tímabili.
 
Hafi starfsmaður fengið greidda dagpeninga fyrir samfellda dvöl 30 daga eða lengur á árinu 2014 skulu viðmiðunarfjárhæðir hér að framan lækka um 10 SDR fyrir hvern dag sem dagpeningagreiðslur fara fram yfir 30 daga samfellt. Gildir það bæði varðandi almenna dagpeninga erlendis og dagpeninga vegna þjálfunar, náms eða eftirlitsstarfa.

 

 

Fara efst á síðuna ⇑