7.19.4 Samstarfsverkefni
Samstarfsverkefni
Til að nýsköpunarverkefni geti talist samstarfsverkefni þarf það að vera í eigu tveggja eða fleiri óskyldra aðila. Reglur um styrkhæfan kostnað gilda fyrir verkefnið í heild, en skattfrádrætti er skipt milli fyrirtækjanna sem taka þátt í því. Skrá yfir alla eigendur verkefnis skal fylgja skattframtali á eyðublaðinu RSK 4.22, Nýsköpun – samstarfsverkefni.
Aukið styrkhæfi
Samstarfsverkefni nýtur aukins styrkhæfis ef eitthvert eftirtalinna skilyrða er uppfyllt:
- Að verkefnið feli í sér samvinnu í það minnsta eins lítils eða eins stórs fyrirtækis, eða samstarf yfir landamæri við félag í öðru EES landi og að ekkert fyrirtæki fari með meira en 70% af styrkhæfum kostnaði.
 - Að verkefnið feli í sér samstarf við rannsóknarstofnun sem fer með a.m.k. 10% hlut og hefur rétt til að birta niðurstöður verkefnisins.
 - Að um sé að ræða rannsóknarverkefni þar sem niðurstöður verða birtar með almennum hætti og dreift ókeypis.
 - Að umsækjandi sé stórt fyrirtæki sem vinnur verkefni í samvinnu við að minnsta kosti eitt lítið eða eitt stórt fyrirtæki, eða að verkefnið sé samstarf yfir landamæri við félag í öðru EES landi.
 
Sjá nánar um styrkhæfi í 15. grein laga nr. 152/2009 um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki. Ef verkefnið uppfyllir skilyrðið um aukið styrkhæfi getur opinber stuðningur að hámarki orðið sem hér segir:
| 
				 Stærð fyrirtækis  | 
			
				 Þróunarverkefni  | 
			
				 Rannsóknarverkefni  | 
		
| 
				 Lítið  | 
			
				 60%  | 
			
				 80%  | 
		
| 
				 Meðalstórt  | 
			
				 50%  | 
			
				 75%  | 
		
| 
				 Stórt  | 
			
				 40%  | 
			
				 65%  | 
		
Með opinberum stuðningi er átt við skattfrádrátt og styrki frá opinberum aðilum, samanlagt.