Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 18.4.2024 23:23:32


Ξ Valmynd

8.3.8  Auðlegðarskattur

Auðlegðarskattur er lagður á í tveimur þrepum. Skattstofninn er nettóeign, þ.e. allar eignir að frádregnum öllum skuldum.

  • Af fyrstu 75 milljónum kr. hjá einhleypingi og 100 milljónum kr. hjá hjónum og sambúðarfólki er enginn skattur.
  • Næstu 75 milljónir kr. hjá einhleypingi og 100 milljónir kr. hjá hjónum og sambúðarfólki bera 1,5% skatt.
  • Á nettóeign umfram 150 milljónir kr. hjá einhleypingi og 200 milljónir kr. hjá hjónum og sambúðarfólki er lagður 2% auðlegðarskattur.

Ef verðmæti hlutabréfa í eigu framteljanda er hærra en nafnverð bréfanna myndar mismunurinn stofn til aðulegðarskatts árið eftir. Er þá miðað við markaðsverð bréfa í félögum sem skráð eru á markaði en í öðrum félögum er miðað við hlutdeild í skattalegu eigin fé.
Þannig myndaði nafnverð hlutabréfa í eigu manns í árslok 2012 stofn til auðlegðarskatts við álagningu 2013. Sé raunvirði bréfanna hærra myndar mismunurinn stofn til viðbótarauðlegðarskatts í framtali 2014.

Nánar um viðbót við auðlegðarskattsstofn

7.21     Endurreikningur hlutabréfaeignar
7.21.1  Útfylling eyðublaðsins RSK 3.23
7.21.2  Hvað færist á framtal?

 

Fara efst á síðuna ⇑