FRAMTALSLEIÐBEININGAR 2014
8.3.1 Útreikningur á tekjuskatti og útsvari
Vegna millifærslu á persónuafslætti hjá hjónum og sambúðarfólki þarf alltaf að reikna fyrst út gjöld þess sem hefur lægri tekjur.
Af fyrstu 2.897.702 kr. reiknast 22,9% tekjuskattur, af næstu 5.976.406 kr. 25,8% og af stofni umfram 8.874.108 kr. 31,8% tekjuskattur. Útsvar er breytilegt eftir sveitarfélögum. Meðaltalið var 14,42% á tekjuárinu 2013.
Tekjuskatts- og útsvarsstofn 1) |
3.500.000 |
|
22,9% tekjuskattur af 2.897.702 + | 663.574 | |
25,8% tekjuskattur af 602.298 + |
155.393 |
|
Sjómannaafsláttur 2) - |
0 |
|
Persónuafsláttur 3) - |
581.820 |
4) |
Tekjuskattur = |
237.147 |
5) |
Útsvar - 14,42% af stofni 6) + |
504.700 |
|
Persónuafsláttur til greiðslu útsvars - |
0 |
7) |
Útsvar til innheimtu = |
504.700 |
- Samkvæmt tölulið 2.7 á framtali.
- Sjómannaafsláttur 2013 var kr. 246 á dag.
- Persónuafsláttur vegna tekna á árinu 2013 er kr. 581.820.
- Til viðbótar venjulegum persónuafslætti getur komið millifærður persónuafsláttur frá maka, sbr. 7).
- Ef reiknaður tekjuskattur er lægri en persónuafsláttur verður tekjuskatturinn 0 en ónýttur afsláttur færist niður í línuna: Persónuafsláttur til greiðslu útsvars.
- Útsvar er mismunandi eftir sveitarfélögum.
- Ónýttur persónuafsláttur gengur til greiðslu útsvars og þar á eftir til greiðslu auðlegðarskatts. Sé þá enn ónýttur afsláttur gengur hann til maka hjá samsköttuðum einstaklingum. Sé enn eftir ónýttur afsláttur ganga 20/37 af því sem ónýtt er til greiðslu á skatti á fjármagnstekjur, en fellur að öðru leyti niður.