Leiđbeiningar um rafrćn skil, sótt 25.4.2024 01:52:48


Ξ Valmynd

2.2.3  Bifreiđahlunnindi

Færa skal bifreiðahlunnindi í reit 134. Afnot starfsmanns af fólksbifreið eða öðrum bifreiðum sem hægt er að hafa sambærileg not af, sem launagreiðandi hans lætur honum í té til fullra umráða, skulu metin starfsmanni til tekna sem hér segir (m.v. heilt ár):
 
Bifreið sem tekin var í notkun á árunum 2011, 2012 eða 2013
26%
Bifreið sem tekin var í notkun á árunum 2008, 2009 eða 2010 21%
Bifreið sem tekin var í notkun á árunum 2007 eða fyrr 18%
 
 
Ekki skiptir máli hver upphaflegur eigandi bifreiðarinnar var. Bifreið sem flutt var inn notuð telst hafa verið tekin til notkunar á því ári sem hún var framleidd. Mánaðarleg hlunnindi teljast 1/12 af hlunnindum reiknuðum eins og framan greinir fyrir hvern byrjaðan mánuð og skal við það miðað ef umráðin vara hluta úr ári.

Greiði launamaður rekstrarkostnað bifreiðar sem hann hefur umráð yfir skulu hlunnindi lækkuð um 6% af verði bifreiðarinnar. Sjá nánari upplýsingar í Bifreiðaskrá 2013 RSK 6.03.

 

 

Fara efst á síđuna ⇑