Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 19.3.2024 11:29:11


Ξ Valmynd

1.1.2  Slysatrygging

Áritun á framtal
Framvegis verður merking vegna slysatryggingar sótt á framtal fyrra árs, eða í stillingar á þjónustusíðu ef framteljandi hefur breytt ákvörðun sinni eftir skil framtals.
Merkingunni er hægt að breyta á framtalinu og einnig í stillingum á þjónustusíðu eftir skil framtals, allt fram til 12. júní.

Slysatrygging við heimilisstörf
Með því að merkja í þennan reit tryggir framteljandi sér rétt til slysabóta almannatrygginga vegna slysa við heimilisstörf, en það er sami réttur og vegna vinnuslysa. Slysabætur almannatrygginga eru:

  • slysadagpeningar,
  • greiðsla sjúkrakostnaðar eftir ákveðnum reglum,
  • örorkubætur ef slysið leiðir til örorku og
  • dánarbætur ef slysið veldur dauða innan tveggja ára frá því það varð.

Iðgjaldið er innheimt ásamt opinberum gjöldum, en það er 450 krónur árið 2014. Tryggingin gildir frá 1. ágúst á framtalsári til 31. júlí næsta árs á eftir. Slysatryggingin gildir því aðeins að framtali sé skilað á réttum tíma.

Nánari upplýsingar um þessa tryggingu er að finna á vef Sjúkratrygginga íslands www.sjukra.is

 

Fara efst á síðuna ⇑