Leiđbeiningar um rafrćn skil, sótt 19.3.2024 05:57:45


Ξ Valmynd

2.3.6  Ađrar greiđslur

Barnsmeðlög að því marki sem þau eru umfram fjárhæð tvöfalds barnalífeyris.
 
Björgunarlaun.
 
Dagvistunargreiðslur.
Dagmæður. Greiðslur frá sveitarfélögum til dagmæðra vegna þeirra eigin barna færast hér. Endurgreiðsla sveitarfélaga til foreldra vegna vistunar barna hjá dagmæðrum telst ekki til tekna hjá foreldrum og færist ekki á framtal. Sjá nánar í kafla 7.10.
 
Dvalar- og ferðastyrkir.
 
Eigin vinna við íbúðarhúsnæði
unnin í venjulegum vinnutíma skal metin til tekna og færð í þennan reit. Sama á við um skiptivinnu, gjafavinnu og eigin vinnu við aðrar fasteignir en íbúðarhúsnæði, s.s. sumarbústaði. Eigin vinna við íbúðarhúsnæði sem unnin er utan venjulegs vinnutíma er skattfrjáls. Gera skal grein fyrir eigin vinnu á Húsbyggingarskýrslu RSK 3.03, sjá nánar í kafla 7.5.
 
Framfærslulífeyrir barnsmóður
(barnsfararkostnaður).
 
Framfærslulífeyrir frá fyrrverandi maka
að því marki sem hann er umfram fjárhæð lágmarksellilífeyris.
 
Fæðingarstyrkur.
 
Gjafir
, þó ekki tækifærisgjafir ef verðmæti þeirra er ekki meira en gerist almennt um slíkar gjafir.
 
Greiðslur frá sveitarfélögum vegna fósturbarna
sem sett eru í fóstur af opinberum aðilum, sjá nánar í kafla 7.10.
 
Greiðslur fyrir vistun aldraðra eða öryrkja
í heimahúsum, sjá nánar í kafla 7.10.
 
Greiðslur til stuðningsfjölskyldna fatlaðra barna, sjá nánar í kafla 7.10.
 
Happdrættisvinningur.
Skattskyldur happdrættisvinningur færist hér, en skattfrjáls færist í 2.9 B, í reit 597.
 
Höfundarlaun, listamannalaun, heiðurslaun, heiðursverðlaun
. Skattskyld heiðursverðlaun skal færa hér en skattfrjáls í 2.9 C í reit 73, sjá skýringar við þann reit.
 
Laun frá alþjóðastofnun
færast hér í þeim tilvikum þar sem í samningum sem Ísland hefur gert við önnur ríki er sérstaklega kveðið á um skattfrelsi. Sé svo ekki færast launin í kafla 2.1.
 
Líkamsræktarstyrkir til heilsueflingar og líkamsræktar.
 
Sjúkra- og slysadagpeningar
frá öðrum en TR.
 
Staðaruppbót
vegna starfa erlendis í þjónustu íslenska ríkisins.
 
Styrkir úr styrktar- og sjúkrasjóðum stéttarfélaga
svo sem vegna gleraugnakaupa, heyrnartækjakaupa, glasafrjóvgunar, krabbameinsskoðunar, ættleiðinga, tannviðgerða, líkamsræktar, sjúkraþjálfunar, sálfræðiþjónustu, dvalar á heilsustofnunum og útfarar.
 
Aðrir styrkir, svo sem til íþróttamanna, sjálfboðaliða við lyfjatilraunir, útfararstyrkir og verkfallsstyrkir.
 
Vinningar
í veðmáli eða keppni.

 

Fara efst á síđuna ⇑