Leiđbeiningar um rafrćn skil, sótt 19.3.2024 06:12:40


Ξ Valmynd

2.2.4  Önnur hlunnindi

Önnur hlunnindi
Í reit 135 færist samtala annarra hlunninda. Á það t.d. við um fatnað, fæði, bifreiðir, húsnæði, fríar ferðir, áskriftir fjölmiðla, tryggingar, síma, tölvur, svo og framlög og gjafir.
 
Fatahlunnindi
Fatahlunnindi skal telja til tekna á kostnaðarverði. Undanþeginn er einkennisfatnaður og nauðsynlegur öryggis- og hlífðarfatnaður sem starfsmenn fá til afnota og er ætlað að nota við störf sín.  Það sama á við um fatnað sem er auðkenndur eða merktur launagreiðanda, og einkum er nýttur vegna starfa í þágu hans.
 
Ekki skal reikna launþega til tekna nauðsynlegan öryggis- eða hlífðarfatnað sem launagreiðandi afhendir honum til afnota við störf hans, þ.m.t. er sá öryggis- og hlífðarfatnaður sem launagreiðendum er skylt skv. lögum, stjórnvaldsfyrirmælum og kjarasamningum að afhenda launþegum án endurgjalds.
 
Fæðishlunnindi
Fæðishlunnindi færast til tekna í samræmi við hlunnindamat ríkisskattstjóra.
Láti launagreiðandi starfsmanni sínum í té fæði á lægra verði en skattmat ríkisskattstjóra segir til um skal telja mismuninn til tekna. Sérhver önnur fæðishlunnindi, sem látin eru launamanni og fjölskyldu hans í té endurgjaldslaust, ber að telja til tekna á kostnaðarverði.
Fæði, sem launagreiðandi lætur starfsmanni og fjölskyldu hans í té endurgjaldslaust, skal metið starfsmanninum til tekna á árinu 2012 sem hér segir:
 
Krónur
Morgunverður
300
Hádegisverður eða kvöldverður
450
Fullt fæði á dag
1.200
 

Húsnæðishlunnindi
Ef launagreiðandi lætur starfsmanni sínum í té endurgjaldslaus afnot íbúðarhúsnæðis skulu þau metin starfsmanni til tekna á árinu 2012 sem hér segir:
Árleg afnot skulu metin til tekna sem jafngildi 5% af fasteignamati íbúðarhúsnæðisins, þ.m.t. bílskúrs og lóðar. Sú fjárhæð er margfölduð með gildistölu þess svæðis þar sem húsnæðið er sbr. eftirfarandi:
 Gildistala
Staðsetning
1,0
Reykjavík (þar með talið Kjalarnes), Seltjarnarnes, Mosfellsbær, Kópavogur, Garðabær, Álftanes, Hafnarfjörður
0,80    
Grindavík, Sandgerði, Garður, Reykjanesbær, Vogar, Akranes, Akureyri, Árborg, Hveragerði, Ölfus
0,70
Önnur sveitarfélög
 
Endurgjaldslausa orkunotkun (rafmagn og hita) skal telja til tekna á kostnaðarverði. Fylgi starfi launamanns kvöð um búsetu í húsnæði sem launagreiðandi lætur honum í té, er ríkisskattstjóra heimilt að lækka mat húsnæðishlunninda við álagningu opinberra gjalda ef launþegi telst ekki nýta húsnæðið að fullu. Íbúðarhúsnæði allt að 150 m2 að viðbættum 5 m2 fyrir hvern íbúa umfram 6 telst fullnýtt.
Eigi skal meta til tekna afnot af húsnæði í verbúðum eða vinnubúðum þar sem launamaður dvelur um takmarkaðan tíma í þjónustu launagreiðanda.
 
Hafi launþegi endurgjaldslaus afnot af orlofshúsnæði frá launagreiðanda sínum í fleiri en 10 daga á ári skal telja launþeganum til tekna með 2.000 kr. fyrir hvern dag sem umfram er. Það sama gildir um slík afnot fjölskyldumeðlims starfsmanns. Með orlofshúsnæði er í þessu sambandi átt við sumarbústaði og annað það húsnæði sem ætlað er til slíkrar notkunar, þ.m.t. íbúðir í þéttbýli.
 
Ekki skal telja til tekna starfsmanns greiðslu frá launagreiðanda, eða eftir atvikum stéttarfélagi, sem ætlað er að standa straum af kostnaði við leigu á orlofshúsnæði eða með öðrum hætti til greiðslu á orlofsdvöl, að því marki sem slík greiðsla fer ekki yfir 40.000 kr. á ári. Skilyrði er að starfsmaður leggi fram fullgilda og óvéfengjanlega reikninga fyrir greiðslu á kostnaði vegna orlofsdvalar þessarar.
 
Ekki skal telja til tekna starfsmanns greiðslu frá launagreiðanda, eða eftir atvikum stéttar­félagi, sem ætlað er að standa straum af kostnaði við að halda góðri heilsu (íþróttaiðkun), að því marki sem slík greiðsla fer ekki yfir 40.000 kr. á ári. Skilyrði er að starfsmaður leggi fram fullgilda og óvefengjanlega reikninga fyrir greiðslu á viðkomandi kostnaði.
 
Lán frá launagreiðanda
Sá sem fær vaxtalaust lán hjá launagreiðanda sínum eða fyrir milligöngu hans skal telja sér vaxtahagræðið til tekna. Telja skal til skattskyldra tekna mismun á vöxtum af lánum sem fengin eru hjá launagreiðanda, eða fyrir milligöngu hans, ef þeir eru lægri en þeir vextir sem birtir eru af Seðlabanka Íslands í samræmi við 10. gr. laga nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu. Miða skal við stöðu láns í byrjun hvers mánaðar og almenna vexti þess mánaðar eins og það er birt í töflu um „bankavextir og dráttarvextir“ á heimasíðu Seðlabanka Íslands, og reikna staðgreiðslu opinberra gjalda á þann hátt mánaðarlega. Eftir atvikum skal miða við almenna vexti af verðtryggðum eða óverðtryggðum lánum. Sama á við um greiðslufresti og afborganir af kaupum á hlutabréfum eða öðrum eignum.

 

 

Fara efst á síđuna ⇑