Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 19.4.2024 20:07:42


Ξ Valmynd

8.3.4  Útreikningur barnabóta

Barnabætur eru tekjutengdar en ekki eignatengdar. Þær eru ákvarðaðar samkvæmt skattframtali og greiddar eftirá. Barnabætur er greiddar með börnum til 18 ára aldurs. Á árinu 2013 eru greiddar bætur með börnum sem fædd eru á tímabilinu 1995-2012. Við ákvörðun barnabóta 2013 er miðað við fjölskyldustöðu eins og hún er í þjóðskrá 31. desember 2012. Þannig fær sá sem hefur barnið hjá sér í árslok 2012 barnabæturnar og skiptir þá ekki máli hvort barnið hafi verið á framfæri hans allt árið eða hluta úr ári.
  
Óskertar barnabætur hjóna eru:
Með fyrsta barni kr.

167.564

Með hverju barni umfram eitt  kr.

199.455

Viðbót vegna barna yngri en 7 ára kr.

100.000


 
Óskertar barnabætur einstæðra foreldra:
Með fyrsta barni kr.

279.087

Með hverju barni umfram eitt  kr.

286.288

Viðbót vegna barna yngri en 7 ára kr.

100.000


Hjá hjónum og sambúðarfólki reiknast skerðing vegna tekna af samanlögðum tekjustofni* umfram kr. 4.800.000 og hjá einstæðu foreldri af tekjustofni umfram kr. 2.400.000. Sé um að ræða eitt barn skerðast barnabætur um 3% af tekjum umfram þessi mörk, ef börnin eru tvö um 5% og ef börnin eru þrjú eða fleiri um 7%. Viðbót vegna barna yngri en 7 ára skerðist um 3% með hverju barni, miðað við sömu tekjumörk.
 
* Tekjustofn til útreiknings barnabóta er frábrugðinn tekjuskattsstofni að því leyti að allar fjármagnstekjur eru hér meðtaldar. Laun frá alþjóðastofnunum sem ekki eru skattlögð koma inn í tekjustofn til útreiknings á barnabótum.
 

Dæmi: Hjón með tvö börn, 5 og 10 ára.
Samanlagður tekjustofn hjóna kr.

5.200.000

Skerðingarmörk vegna tekna kr.

4.800.000

Stofn til skerðingar        kr.

400.000

     
Óskertar barnabætur (167.564 + 199.455) kr.

367.019

Skerðing vegna tekna (5% af 400.000) kr.

-20.000

Viðbót vegna barna yngri en 7 ára kr.

100.000

Skerðing vegna tekna (3% af 400.000) kr. -12.000
Barnabætur verða kr.

435.019

Barnabætur skiptast jafnt á milli hjóna og verða kr. 217.510 hjá hvoru. Hjá sambúðarfólki sem á rétt á samsköttun reiknast barnabætur alltaf eins og hjá hjónum, hvort sem þau skila sameiginlegu framtali eða ekki.
 
Fyrirframgreiðsla barnabóta
Fyrirframgreiðslan nemur 50% af áætluðum barnabótum ársins og greiðist með tveimur jöfnum greiðslum, 1. febrúar og 1. maí. Við ákvörðun á fyrirframgreiðslu er tekið mið af upplýsingum úr staðgreiðsluskrá um launatekjur framfæranda. Við uppgjör í ágúst er fyrirframgreiðslan dregin frá barnabótum eins og þær eru ákvarðaðar í álagningu. Eftirstöðvar eru greiddar út 1. ágúst og 1. nóvember.

 

Fara efst á síðuna ⇑