Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 26.4.2024 01:34:58


Ξ Valmynd

8.3.1  Útreikningur á tekjuskatti og útsvari

Vegna millifærslu á persónuafslætti hjá hjónum og sambúðarfólki þarf alltaf að reikna fyrst út gjöld þess sem hefur lægri tekjur.
 
Af fyrstu 2.760.000 kr. reiknast 22,9% tekjuskattur, af næstu 5.694.400 kr. 25,8% og af stofni umfram 8.452.400 kr. 31,8% tekjuskattur. Útsvar er breytilegt eftir sveitarfélögum. Meðaltalið var 14,44% á tekjuárinu 2012.
  
 
 
Tekjuskatts- og útsvarsstofn 1)

3.500.000

 
     
22,9% tekjuskattur af 2.760.000                 +  632.040  
25,8% tekjuskattur af 740.000                    +

190.920

 
Sjómannaafsláttur 2)                                     -

0

 
Persónuafsláttur 3)                                        -

558.385

4)

Tekjuskattur    =

264.575

5)
     
Útsvar - 14,44% af stofni 6)                         +

505.400

 
Persónuafsláttur til greiðslu útsvars         -

0

7)

Útsvar til innheimtu   = 

505.400

 
  1. Samkvæmt tölulið 2.7 á framtali.
  2. Sjómannaafsláttur 2012 var kr. 493 á dag.
  3. Persónuafsláttur vegna tekna á árinu 2012 er kr. 558.385.
  4. Til viðbótar venjulegum persónuafslætti getur komið millifærður persónuafsláttur frá maka, sbr. 7).
  5. Ef reiknaður tekjuskattur er lægri en persónuafsláttur verður tekjuskatturinn 0 en ónýttur afsláttur færist niður í línuna: Persónuafsláttur til greiðslu útsvars.
  6. Útsvar er mismunandi eftir sveitarfélögum.
  7. Ónýttur persónuafsláttur gengur til greiðslu útsvars og þar á eftir til greiðslu auðlegðarskatts. Sé þá enn ónýttur afsláttur gengur hann til maka hjá samsköttuðum einstaklingum. Sé enn eftir ónýttur afsláttur ganga 20/37 af því sem ónýtt er til greiðslu á skatti á fjármagnstekjur, en fellur að öðru leyti niður.

 

 

Fara efst á síðuna ⇑