Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 28.3.2024 14:14:40


Ξ Valmynd

3.5  Hlutabréf og stofnfjárbréf sparisjóða

Í þennan kafla færast upplýsingar um nafnverð, arð og staðgreiðslu vegna innlendra hlutabréfa og stofnfjárbréfa í sparisjóðum sjálfkrafa af eyðublaði RSK 3.19 Hlutabréfaeign – kaup og sala (sjá kafla 7.6). Framteljandi færir því allar upplýsingar um hlutabréf og stofnfjárbréf á það eyðublað en getur ekki skráð beint í þennan kafla framtalsins.
 
 
RSK 3.19 Hlutabréfaeign - kaup og sala
Farið er inn í skráningarmyndirnar með því á smella á hnappinn >> sem er hægra megin í kennitölureitnum. Síðan er farið á milli þrepa með því að smella á Áfram>> eða <<Til Baka.
 
Hafi framteljandi skilað hlutabréfayfirliti RSK 3.19 í fyrra, þá eru nú árituð inn á blaðið þau hlutabréf sem til voru í árslok skv. þeim skilum. Búið er að skrá kennitölu í dálk 1 og nafn félags í dálk 2, sem og nafnverð í ársbyrjun í dálk 3 og stofnverð (kaupverð) í dálk 4.
 
Hafi hlutafélag skilað hlutafjármiðum til skattstjóra eru einnig áritaðar upplýsingar af þeim miðum um arð og staðgreiðslu. Hafi framteljandi fengið greiddan arð á árinu 2012 er búið að árita hann í dálk 13 og staðgreiðslu af arði í dálk 14.
 
Allar breytingar á hlutabréfaeign á árinu 2012 (t.d. kaup eða sölu hlutabréfa) þarf síðan að skrá inn á blaðið, í þrepum 2 og 3.
 
Hlutabréf í nokkrum stórum almenningshlutafélögum teljast verðlaus þótt félögunum hafi ekki formlega verið slitið, m.a. hlutabréf í öllum gömlu viðskiptabönkunum og stofnfjárbréf í stærstu sparisjóðunum. Þessi bréf færast sjálfkrafa á verðinu 0 í kafla 3.5 á framtali þótt nafnverð og kaupverð séu skráð á eyðublaðið RSK 3.19.
 
Hafi framteljandi ekki skilað hlutabréfayfirliti RSK 3.19 áður, þá gildir eftirfarandi:
Nafnverð hlutabréfa er ekki áritað á eyðublaðið. Framteljandi þarf að færa nafnverð hlutabréfa sem hann átti í ársbyrjun 2012 inn í skráningarmynd (þrep 1). Hafi hlutabréf verið keypt í félaginu á árinu eru þau skráð í þrep 2 en seld hlutabréf í þrep 3.
 
Þegar búið er að skrá þessar upplýsingar reiknar eyðublaðið sjálfkrafa nafnverð hlutabréfa sem framteljandi átti í árslok 2012. Það er birt í dálki 15 og á að stemma við nafnverð sem tilgreint er á hlutafjármiða (hlutafjármiðar eru sýndir á sundurliðunarblaði).

 

 

Fara efst á síðuna ⇑