FRAMTALSLEIÐBEININGAR 2012
8.3.1 Útreikningur á tekjuskatti og útsvari
Vegna millifærslu á persónuafslætti hjá hjónum og sambúðarfólki þarf alltaf að reikna fyrst út gjöld þess sem hefur lægri tekjur.
Af fyrstu 2.512.800 kr. reiknast 22,9% tekjuskattur, af næstu 5.653.800 kr. 25,8% og af stofni umfram 8.166.600 kr. 31,8% tekjuskattur. Útsvar er breytilegt eftir sveitarfélögum. Meðaltalið var 14,41% á tekjuárinu 2011.
Tekjuskatts- og útsvarsstofn 1) |
3.000.000 |
|
22,9% tekjuskattur af 2.512.800 + | 575.431 | |
25,8% tekjuskattur af 487.200 + |
125.698 |
|
Sjómannaafsláttur 2) - |
0 |
|
Persónuafsláttur 3) - |
530.466 |
4) |
Tekjuskattur = |
170.663 |
5) |
Útsvar - 14,41% af stofni 6) + |
432.300 |
|
Persónuafsláttur til greiðslu útsvars - |
0 |
7) |
Útsvar til innheimtu = |
432.300 |
- Samkvæmt tölulið 2.7 á framtali.
- Sjómannaafsláttur 2011 var kr. 740 á dag.
- Persónuafsláttur vegna tekna á árinu 2011 er kr. 530.466.
- Til viðbótar venjulegum persónuafslætti getur komið millifærður persónuafsláttur frá maka, sbr. 7).
- Ef reiknaður tekjuskattur er lægri en persónuafsláttur verður tekjuskatturinn 0 en ónýttur afsláttur færist niður í línuna: Persónuafsláttur til greiðslu útsvars.
- Útsvar er mismunandi eftir sveitarfélögum.
- Ónýttur persónuafsláttur gengur til greiðslu útsvars. Sé þá enn ónýttur afsláttur færast 100% til maka hjá samsköttuðum einstaklingum. Sé enn eftir ónýttur afsláttur ganga 18/37 af því sem ónýtt er til greiðslu á skatti á fjármagnstekjur.