Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 13.5.2024 07:58:15


Ξ Valmynd

8.3.1  Útreikningur á tekjuskatti og útsvari

Vegna millifærslu á persónuafslætti hjá hjónum og sambúðarfólki þarf alltaf að reikna fyrst út gjöld þess sem hefur lægri tekjur.
 
Af fyrstu 2.400.000 kr. reiknast 24,1% tekjuskattur, af næstu 5.400.000 kr. 27% og af stofni umfram 7.800.000 kr. 33% tekjuskattur. Útsvar er breytilegt eftir sveitarfélögum. Meðaltalið var 13,12% á tekjuárinu 2010, en sama útsvar reiknast á allan stofninn.
  
 
 
Tekjuskatts- og útsvarsstofn 1)

3.000.000

 
     
24,1% tekjuskattur af 2.400.000                 +  578.400  
27,0% tekjuskattur af 600.000                    +

162.000

 
Sjómannaafsláttur 2)                                     -

0

 
Persónuafsláttur 3)                                        -

530.466

4)

Tekjuskattur    =

209.934

5)
     
Útsvar - 13,12% af stofni 6)                         +

393.600

 
Persónuafsláttur til greiðslu útsvars         -

0

7)

Útsvar til innheimtu   = 

393.600

 
  1. Samkvæmt tölulið 2.7 á framtali.
  2. Sjómannaafsláttur 2010 var kr. 987 á dag.
  3. Persónuafsláttur vegna tekna á árinu 2010 er kr. 530.466.
  4. Til viðbótar venjulegum persónuafslætti getur komið millifærður persónuafsláttur frá maka, sbr. 7).
  5. Ef reiknaður tekjuskattur er lægri en persónuafsláttur verður tekjuskatturinn 0 en ónýttur afsláttur færist niður í línuna: Persónuafsláttur til greiðslu útsvars.
  6. Útsvar er mismunandi eftir sveitarfélögum.
  7. Ónýttur persónuafsláttur gengur til greiðslu útsvars. Sé þá enn ónýttur afsláttur færast 100% til maka hjá samsköttuðum einstaklingum. Sé enn eftir ónýttur afsláttur ganga 18/37 af því sem ónýtt er til greiðslu á skatti á fjármagnstekjur.

 

 

Fara efst á síðuna ⇑