Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 11.5.2024 13:39:36


Ξ Valmynd

6.1  Launatekjur barns

1.1   Laun og starfstengdar greiðslur barns
Hér færast launatekjur barnsins.
 
1.2   Reiknað endurgjald barns
 Í þennan lið færist reiknað endurgjald starfi barnið við atvinnurekstur forráðanda. Eftirfarandi viðmiðun skal hafa við ákvörðun á reiknuðu endurgjaldi barns árið 2010:
 
Sé barn 13 ára, dagvinna kr. 677 pr. klst. og yfirvinna kr. 1.219 pr. klst.
Sé barn 14 ára, dagvinna kr. 782 pr. klst. og yfirvinna kr. 1.402 pr. klst.
Sé barn 15 ára, dagvinna kr. 886 pr. klst. og yfirvinna kr. 1.544 pr. klst.
Reiknað endurgjald barna er ekki staðgreiðsluskylt.
 
1.3   Dagpeningar og hlunnindi barns
Hafi barnið fengið greidda dagpeninga vegna ferða á vegum vinnuveitanda skal færa þá til tekna í reit 23. Frádráttur á móti dagpeningum færist í reit 33. Fylla skal út eyðublaðið Dagpeningar RSK 3.11 vegna þessa frádráttar. Hér eru einnig færð laun sem greidd hafa verið í hlunnindum, svo sem fæðishlunnindum eða fatahlunnindum.

 

Fara efst á síðuna ⇑