Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 13.5.2024 10:05:25


Ξ Valmynd

9.3  Greiðsluúrræði

Ég var í vanskilum með húsnæðislánin mín um áramótin – hvernig á að telja vextina og verðbæturnar?

Svar: Til vaxtagjalda við útreikning vaxtabóta máttu telja gjaldfallna vexti og verðbætur ársins. Þess vegna skiptir ekki máli í þessu sambandi þótt lán sé í van­skilum um áramótin. Þú átt að telja fram allt það sem gjaldfallið er.


Ég varð að frysta hluta af afborgunum af húsnæðisláninu mínu – hvernig tel ég það fram?

Svar: Þann hluta frestaðra greiðslna sem voru vextir og verðbætur, áttu að telja með í vaxtagjöldum til útreiknings vaxtabóta. Eftirstöðvar lánsins, að viðbættum frestuðum greiðslum, færast sem skuld í árslok.


Ég sagði mig ekki frá greiðslujöfnun sem ákveðin var samkvæmt lögum – hvaða áhrif hefur það?

Svar: Greiðslujöfnun sem fram fór í nóvember 2009 var almenn aðgerð sem beitt var á öll verðtryggð lán sem tryggð voru með veði í fasteignum. Í þessum tilvikum er reiknað út greiðslumark og ef gjaldfallin fjárhæð er umfram það þá er greiðslu mismunarins frestað. Sú fjárhæð sem frestað er greiðslu á er færð í jöfnunar­reikning sem telst hluti af höfuðstóli lánsins. Þú mátt færa þá fjárhæð sem frestað er greiðslu á, að svo miklu leyti sem hún er vextir og verðbætur, sem vaxtagjöld ársins 2010 og sá hluti kemur því til útreiknings á vaxtabótum.


Ég gekk í gegnum greiðsluaðlögun á árinu 2010 – hvaða áhrif hefur það á skattskýrsluna mína?

Svar: Þú mátt telja gjaldfallna vexti og verðbætur með vaxtagjöldum til útreikn­ings vaxtabóta. Að öðru leyti hefur þetta engin áhrif á meðan greiðslu­aðlögunar­tíminn stendur en gæti haft einhver áhrif í lok þess tímabils allt eftir því hverjar lyktir verða.


Bankinn minn bauð mér að breyta verðtryggðu húsnæðisláni og bílaláni í óverðtryggt lán – skiptir þetta máli í skattskýrslunni minni?

Svar: Já þetta getur skipt máli. Þú mátt bara færa gjaldfallin vaxtagjöld og verð­bætur til vaxtagjalda til útreiknings vaxtabóta, en ekki það sem uppreiknað var umfram lánsskilmálana. Á sama hátt skal færa gjaldfallin vaxtagjöld og verð­bætur af bílalánum í lið 5.5 í framtali. Rétt reiknuð vaxtagjöld ættu að koma fram á sundurliðunarblaði sem fylgir framtali, en þar eru upplýsingar frá lánastofnunum. Mörg lánanna eru einnig árituð á vefframtal.

 

Fara efst á síðuna ⇑