FRAMTALSLEIÐBEININGAR 2027
8.3.2 Fjármagnstekjuskattur
Skattur á fjármagnstekjur
Skattur á tekjur samkvæmt 3. kafla framtals er 22% á árinu 2026. Frá og með álagningu 2027 gengur persónuafsláttur sem ekki nýtist vegna tekjuskatts eða til greiðslu útsvars ekki lengur til greiðslu skatts á fjármagnstekjur.
Einungis 75% leigutekna af útleigu íbúðarhúsnæðis til búsetu leigjanda og sem fellur undir húsaleigulög mynda skattstofn og frítekjumark á vaxtatekjur, arð og söluhagnað hlutabréfa á skipulegum verðbréfamarkaði er 300.000 kr. hjá einhleypingi og 600.000 kr. hjá hjónum/samsköttuðum.