Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 22.11.2026 12:39:53


Ξ Valmynd

8.3.1  Útreikningur á tekjuskatti og útsvari

Vegna millifærslu á persónuafslætti hjá hjónum og sambúðarfólki þarf alltaf að reikna fyrst út gjöld þess sem hefur lægri tekjur.
 
Af fyrstu 5.977.470 kr. reiknast 16,55% tekjuskattur, af næstu 10.803.927 kr. reiknast 23,05% tekjuskattur og af stofni umfram 16.781.397 kr. reiknast 31,35% tekjuskattur. Útsvar er breytilegt eftir sveitarfélögum. Meðaltalið var 14,94% á tekjuárinu 2026.
 
Tekjuskatts- og útsvarsstofn 1)

17.500.000

 
16,55% tekjuskattur af 5.977.470 kr.             +  989.271  
23,05% tekjuskattur af 10.803.927 kr.           + 2.490.305  
31,35% tekjuskattur af 718.603 kr.                  +

225.282

 
Persónuafsláttur 2)                                        -

869.898

3)

Tekjuskattur    =

2.834.960

4)
     
Útsvar - 14,94% af stofni 5)                         +

2.614.500

 
Persónuafsláttur til greiðslu útsvars            -

0

6)

Útsvar til innheimtu   = 

2.614.500

 
  1. Samkvæmt tölulið 2.7 á framtali.
  2. Persónuafsláttur vegna tekna á árinu 2026 er kr. 869.898.
  3. Til viðbótar venjulegum persónuafslætti getur komið millifærður persónuafsláttur frá maka, sbr. 6).
  4. Ef reiknaður tekjuskattur er lægri en persónuafsláttur verður tekjuskatturinn 0 en ónýttur afsláttur færist niður í línuna: Persónuafsláttur til greiðslu útsvars.
  5. Útsvar er mismunandi eftir sveitarfélögum. Er á bilinu 12,44% til 14,97%.
  6. Ónýttur persónuafsláttur gengur til greiðslu útsvars. Sé þá enn ónýttur afsláttur gengur hann til maka hjá samsköttuðum einstaklingum, en fellur að öðru leyti niður.

 

 

Fara efst á síðuna ⇑