FRAMTALSLEIÐBEININGAR 2026
8.3.1 Útreikningur á tekjuskatti og útsvari
Vegna millifærslu á persónuafslætti hjá hjónum og sambúðarfólki þarf alltaf að reikna fyrst út gjöld þess sem hefur lægri tekjur.
Af fyrstu 5.664.062 kr. reiknast 16,55% tekjuskattur, af næstu 10.237.461 kr. reiknast 23,05% tekjuskattur og af stofni umfram 15.901.523 kr. reiknast 31,35% tekjuskattur. Útsvar er breytilegt eftir sveitarfélögum. Meðaltalið var 14,94% á tekjuárinu 2025.
| Tekjuskatts- og útsvarsstofn 1) |
16.500.000 |
|
| 16,55% tekjuskattur af 5.664.062 kr. + | 937.402 | |
| 23,05% tekjuskattur af 10.237.461 kr. + | 2.359.735 | |
| 31,35% tekjuskattur af 598.477 kr. + |
187.623 |
|
| Persónuafsláttur 2) - |
824.288 |
3) |
|
Tekjuskattur = |
2.660.472 |
4) |
| Útsvar - 14,94% af stofni 5) + |
2.465.100 |
|
| Persónuafsláttur til greiðslu útsvars - |
0 |
6) |
|
Útsvar til innheimtu = |
2.465.100 |
- Samkvæmt tölulið 2.7 á framtali.
- Persónuafsláttur vegna tekna á árinu 2025 er kr. 824.288.
- Til viðbótar venjulegum persónuafslætti getur komið millifærður persónuafsláttur frá maka, sbr. 6).
- Ef reiknaður tekjuskattur er lægri en persónuafsláttur verður tekjuskatturinn 0 en ónýttur afsláttur færist niður í línuna: Persónuafsláttur til greiðslu útsvars.
- Útsvar er mismunandi eftir sveitarfélögum. Er á bilinu 12,44% til 14,97%.
- Ónýttur persónuafsláttur gengur til greiðslu útsvars. Sé þá enn ónýttur afsláttur gengur hann til maka hjá samsköttuðum einstaklingum. Sé enn eftir ónýttur afsláttur ganga 22/31 af því sem ónýtt er til greiðslu á skatti á fjármagnstekjur, en fellur að öðru leyti niður.