FRAMTALSLEIÐBEININGAR 2025
		8.3.1 Útreikningur á tekjuskatti og útsvari
Vegna millifærslu á persónuafslætti hjá hjónum og sambúðarfólki þarf alltaf að reikna fyrst út gjöld þess sem hefur lægri tekjur.
Af fyrstu 5.353.634 kr. reiknast 16,55% tekjuskattur, af næstu 9.676.380 kr. reiknast 23,05% tekjuskattur og af stofni umfram 15.030.014 kr. reiknast 31,35% tekjuskattur. Útsvar er breytilegt eftir sveitarfélögum. Meðaltalið var 14,93% á tekjuárinu 2024.
| Tekjuskatts- og útsvarsstofn 1) | 
			 15.500.000  | 
			|
| 16,55% tekjuskattur af 5.353.634 kr. + | 886.026 | |
| 23,05% tekjuskattur af 9.676.380 kr. + | 2.230.406 | |
| 31,35% tekjuskattur af 469.986 kr. + | 
			 147.341  | 
			|
| Persónuafsláttur 2) - | 
			 779.112  | 
			3) | 
| 
			 Tekjuskattur =  | 
			
			 2.484.661  | 
			4) | 
| Útsvar - 14,93% af stofni 5) + | 
			 2.314.150  | 
			|
| Persónuafsláttur til greiðslu útsvars - | 
			 0  | 
			6) | 
| 
			 Útsvar til innheimtu =  | 
			
			 2.314.150  | 
			
- Samkvæmt tölulið 2.7 á framtali.
 - Persónuafsláttur vegna tekna á árinu 2024 er kr. 779.112.
 - Til viðbótar venjulegum persónuafslætti getur komið millifærður persónuafsláttur frá maka, sbr. 6).
 - Ef reiknaður tekjuskattur er lægri en persónuafsláttur verður tekjuskatturinn 0 en ónýttur afsláttur færist niður í línuna: Persónuafsláttur til greiðslu útsvars.
 - Útsvar er mismunandi eftir sveitarfélögum. Er á bilinu 12,44% til 14,97%.
 - Ónýttur persónuafsláttur gengur til greiðslu útsvars. Sé þá enn ónýttur afsláttur gengur hann til maka hjá samsköttuðum einstaklingum. Sé enn eftir ónýttur afsláttur ganga 22/31 af því sem ónýtt er til greiðslu á skatti á fjármagnstekjur, en fellur að öðru leyti niður.