FRAMTALSLEIÐBEININGAR 2024
6.1 Launatekjur barns
1.1 Laun, lífeyrir og starfstengdar greiðslur barns
Hér færast launatekjur barnsins og aðrar starfstengdar greiðslur, sem og greiðslur úr lífeyrissjóðum til barnsins.

1.2 Reiknað endurgjald barns
Í þennan lið færist reiknað endurgjald starfi barnið við atvinnurekstur forráðanda. Eftirfarandi viðmiðun skal hafa við ákvörðun á reiknuðu endurgjaldi barns árið 2023:
Sé barn 15 ára:
Mánaðarlaun 224.000 kr.
Árslaun 2.688.000 kr.
Sé barn 13 eða 14 ára:
Mánaðarlaun 193.000 kr.
Reiknað endurgjald barna er ekki staðgreiðsluskylt.
Árslaun 2.316.000 kr.
Reiknað endurgjald barna er ekki staðgreiðsluskylt.
1.3 Dagpeningar og hlunnindi barns
Hafi barnið fengið greidda dagpeninga vegna ferða á vegum vinnuveitanda skal færa þá til tekna í reit 23. Frádráttur á móti dagpeningum færist í reit 33. Fylla skal út eyðublaðið Dagpeningar RSK 3.11 vegna þessa frádráttar. Hér eru einnig færð laun sem greidd hafa verið í hlunnindum, svo sem fæðishlunnindum eða fatahlunnindum.