Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 18.5.2024 12:03:11


Ξ Valmynd

3.2  Innstæður í erlendum bönkum

Hér skal færa innstæður í erlendum bönkum. Þær færast til eignar í íslenskum krónum á gengi í árslok, í reit 321. Vaxtatekjur af þeim færast, þegar þær eru lausar til ráðstöfunar, í reit 322. Vaxtatekjur sem falla til yfir árið má færa á meðalgengi ársins.
 
Gengistafla vegna ársins 2023
Gjaldmiðill

Meðalmiðgengi ársins

(fyrir vaxtatekjur ársins)

Miðgengi í árslok

(fyrir innstæður í árslok)

USD  Bandaríkjadalur 137,98 136,20
GBP  Sterlingspund 171,46 173,18
EUR  Evra 149,14 150,50
DKK  Dönsk króna 20,016 20,193
NOK  Norsk króna 13,072 13,389
SEK  Sænsk króna 13,004 13,563
CHF  Svissneskur franki 153,49 162,53
JPY  Japanskt jen 0,9838 0,9627
CAD  Kanadadalur 102,21 102,79
PLN  Pólskt slot 32,857 34,681

Upplýsingar um gengi annarra gjaldmiðla má fá á heimasíðu Seðlabankans, sedlabanki.is

 

 

Fara efst á síðuna ⇑