Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 27.11.2024 04:03:33


Ξ Valmynd

6.1  Launatekjur barns

1.1   Laun, lífeyrir og starfstengdar greiðslur barns
Hér færast launatekjur barnsins og aðrar starfstengdar greiðslur, sem og greiðslur úr lífeyrissjóðum til barnsins.
 
1.2   Reiknað endurgjald barns
 Í þennan lið færist reiknað endurgjald starfi barnið við atvinnurekstur forráðanda. Eftirfarandi viðmiðun skal hafa við ákvörðun á reiknuðu endurgjaldi barns árið 2021:
 
Sé barn 15 ára:
       Mánaðarlaun        193.000 kr.
       Árslaun              2.316.000 kr.
Sé barn 13 eða 14 ára:
       Mánaðarlaun      166.000 kr.
       Árslaun            1.992.000 kr.

Reiknað endurgjald barna er ekki staðgreiðsluskylt.
 
1.3   Dagpeningar og hlunnindi barns
Hafi barnið fengið greidda dagpeninga vegna ferða á vegum vinnuveitanda skal færa þá til tekna í reit 23. Frádráttur á móti dagpeningum færist í reit 33. Fylla skal út eyðublaðið Dagpeningar RSK 3.11 vegna þessa frádráttar. Hér eru einnig færð laun sem greidd hafa verið í hlunnindum, svo sem fæðishlunnindum eða fatahlunnindum.

 

Fara efst á síðuna ⇑