Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 25.4.2024 04:46:31


Ξ Valmynd

4.3  Bifreiðir

Bifreiðaeign í árslok 2020 færist í reit 06. Heimilt er að færa verð bifreiða niður um 10% frá því verði sem þær voru taldar til eignar á framtali 2020. Bifreiðir sem keyptar voru á árinu 2020 færast á kaupverði. Bifreiðir barna færast einnig hér. ATH. Framteljandi þarf í flestum tilfellum sjálfur að færa inn kaupverð nýrra bifreiða sem keyptar voru á árinu 2020!
 
Á vefframtal eru árituð fastanúmer bifreiða. Hafi framteljandi átt bifreiðina árið áður er verð hennar einnig áritað, niðurfært um 10%, en ella þarf hann að færa sjálfur inn kaupverðið.
 
Þegar um er að ræða kaupleigubifreiðir eru vaxtagjöld og eftirstöðvar bifreiðalána færð í lið 5.5 á framtalinu. Fjármögnunar- og rekstrarleigubifreiðar, án uppkaupsákvæða í samningi, eignfærast ekki hjá leigutaka.
 
Á sundurliðunarblaði eru tilgreindar allar bifreiðir sem skráðar eru á framteljendur skv. ökutækjaskrá Samgöngustofu.
 
Beiðni um afskráningu eða leiðréttingu á skráningu bifreiða skal beina til Samgöngustofu. Hægt er að nálgast afskráningareyðublað á vef Samgöngustofu (sjá hér).

 

 

Fara efst á síðuna ⇑