FRAMTALSLEIÐBEININGAR 2019
		6.1 Launatekjur barns
1.1   Laun og starfstengdar greiðslur barns
Hér færast launatekjur barnsins.
 
Hér færast launatekjur barnsins.
1.2   Reiknað endurgjald barns 
 Í þennan lið færist reiknað endurgjald starfi barnið við atvinnurekstur forráðanda. Eftirfarandi viðmiðun skal hafa við ákvörðun á reiknuðu endurgjaldi barns árið 2018:
Sé barn 15 ára:
       Mánaðarlaun        162.000 kr.
       Árslaun              1.944.000 kr.
Sé barn 13 eða 14 ára:
       Mánaðarlaun      140.000 kr.
Reiknað endurgjald barna er ekki staðgreiðsluskylt.
       Árslaun            1.680.000 kr.
Reiknað endurgjald barna er ekki staðgreiðsluskylt.
1.3   Dagpeningar og hlunnindi barns
Hafi barnið fengið greidda dagpeninga vegna ferða á vegum vinnuveitanda skal færa þá til tekna í reit 23. Frádráttur á móti dagpeningum færist í reit 33. Fylla skal út eyðublaðið Dagpeningar RSK 3.11 vegna þessa frádráttar. Hér eru einnig færð laun sem greidd hafa verið í hlunnindum, svo sem fæðishlunnindum eða fatahlunnindum.