FRAMTALSLEIÐBEININGAR 2019
7.1.5.3 RSK 4.05 Samræmingarblað
Samræmingarblaðið er tenging milli rekstrarblaða og persónuframtals og er því lykilblað þegar skilað er skattframtali einstaklings í eigin atvinnurekstri. Niðurstöður úr rekstri (þ.e. af RSK 4.10, 4.11, 4.08 eða 1.04) ”millilenda” á samræmingarblaði RSK 4.05 og færast þaðan yfir á persónuframtal.
Á samræmingarblaði er hægt að sundurliða reiknað endurgjald og skrá inn yfirfæranlegt tap frá fyrri árum. Þar er jafnframt gerð grein fyrir stofni til tryggingagjalds (launaframtal) í rafrænum skilum.