Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 29.3.2024 11:19:25


Ξ Valmynd

4.1.1  Áritun fasteigna á framtal

Upplýsingar frá Þjóðskrá Íslands um mat fasteigna í árslok 2013 eru áritaðar á framtalið.
 
Vanti í einhverjum tilvikum fasteignir inn í fasteignamatið og sundurliðunina, þarf að bæta þeim á framtalið. Einnig getur þurft að leiðrétta áritaða fjárhæð á framtali eða bæta henni við, sé fasteignamatið ekki áritað. Upplýsingar um fasteignir og fasteignamat er að finna á tilkynningu (fasteignamatsseðli) sem húseigendur fá frá Þjóðskrá Íslands. Tilgreina skal heildarmat (þ.e. fasteignamat samtals) og fastanúmer fyrir hverja eign. Framteljandi skráir aðeins sinn eignarhluta ef um sameign er að ræða.
 
Leiðréttingar sem þessar geta m.a. átt við ef fasteignamat hefur breyst vegna kærumeðferðar og nýtt fasteignamat borist framteljanda áður en framtalsgerð lýkur. Í þeim tilvikum skal nýja fasteignamatið fært á framtal. Leiðréttingu á árituðu fasteignamati þarf framteljandi að rökstyðja með nauðsynlegum fylgigögnum auk þess sem geta skal um slíkt í athugasemdum í lið 1.4.
Auk leiðréttingar á framtali skal beiðni um leiðréttingu á fasteignamati eða breytta skráningu komið til Þjóðskrár Íslands.
 
Vakin er athygli á því, að fasteignir eru ekki áritaðar hjá þeim sem skiluðu efnahagsreikningi með framtali sínu 2013 og eru auk þess með reiknuð laun við eigin atvinnurekstur. Stafar það af því að ekki er í öllum tilfellum hægt að greina vélrænt á milli eigna sem tengjast atvinnurekstri og annarra eigna.

 

 

Fara efst á síðuna ⇑