Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 26.4.2024 13:49:14


Ξ Valmynd

1.9  Framtalsskil á pappír

Framtalinu má skila á pappír á næstu starfsstöð ríkisskattstjóra.

Undanfarin ár hefur verið dregið markvisst úr útsendingu gagna á pappír, enda rafræn skil komin yfir 96% og flestir þurfa ekkert nema veflykilinn sinn. Í ár var framtalið aðeins sent heim til um 4% framteljenda.
 
Þeir sem hafa haldið sig við pappírinn eru hvattir til að prófa framtalið á vefnum hafi þeir möguleika á því. Það er alltaf hægt að hætta við og skila á pappír ef svo ber undir. Fyrir flesta er bæði auðveldara og öruggara að telja fram á vefnum. Öll fylgiskjöl sem getur þurft að skila með framtali eru aðgengileg á vefnum eða hægt að senda þau með sem fylgigögn.
 
Margvísleg aðstoð, s.s. aðgengilegar leiðbeiningar, aukin áritun, samlagning og villupróf tryggja auðveldari og réttari skil, að ógleymdri símaþjónustunni (í 442-1414) ef eitthvað bjátar á. Þá eru afrit af framtölum, líka þeirra sem skiluðu á pappír í fyrra, á vísum stað á þjónustusíðunni og því óþarfi að leita dyrum og dyngjum að þeim.

 

Fara efst á síðuna ⇑