Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 29.3.2024 10:11:18


Ξ Valmynd

5.5  Aðrar skuldir og vaxtagjöld

Skuldir vegna kaupa eða byggingar íbúðarhúsnæðis til eigin nota færast undir lið 5.2 en hér færast aðrar skuldir og vaxtagjöld af þeim. Hér skal meðal annars færa yfirdrátt á tékkareikningi og skuldir vegna greiðslukorta.
 
Verðtryggðar skuldir færast með áföllnum verðbótum í árslok. Óverðtryggðar skuldir færast á nafnverði eftir síðustu afborgun.
 
Skuldir í erlendri mynt skal telja á sölugengi í árslok.
Skuldir barna innan 16 ára færast einnig hér.
 
Áritaðar „Aðrar skuldir“
Á framtalið eru áritaðar undir þessum lið upplýsingar um námslán frá Lánasjóði íslenskra námsmanna (LÍN), en þær eiga að stemma við yfirlit sem lánþegar geta nálgast á „Mínu svæði“ hjá LÍN.
Einnig eru árituð hér ökutækjalán frá tryggingarfélögum sem og fjármögnunarleigum ef ökutæki telst í eigu lántakanda.
Jafnframt eru frá og með framtali 2010 áritaðar hér flestallar aðrar skuldir sem skattyfirvöld fá vitneskju um frá fjármálastofnunum og öðrum aðilum, t.d. yfirdráttarskuldir, skuldir við greiðslukortafyrirtæki, skuldir opinberra gjalda o.fl.

 

Fara efst á síðuna ⇑