FRAMTALSLEIĐBEININGAR 2012
2.6.6 Frádráttur vegna viđhalds og endurbóta
Gerð er grein fyrir frádrætti vegna viðhalds og endurbóta á íbúðar- og frístundahúsnæði á eyðublaði RSK 3.22.
Við álagningu opinberra gjalda árin 2011 og 2012 heimilast til frádráttar tekjuskattsstofni 50% af þeirri fjárhæð sem greidd er vegna vinnu án virðisaukaskatts sem unnin er á árunum 2010 og 2011 vegna viðhalds og endurbóta á íbúðar- og frístundahúsnæði til eigin nota. Heimild þessi tekur einnig til viðhalds og endurbóta á útleigðu íbúðarhúsnæði utan atvinnurekstrar. Hámark frádráttar er 200.000 kr. hjá einstaklingi. Hjá hjónum og samsköttuðum er hámarksfrádráttur 300.000 kr. og kemur til lækkunar hjá þeim sem hefur hærri tekjuskattsstofn í kafla 2.7 á skattframtali.
Frádráttur er háður því skilyrði að skilað hafi verið á fullgildum reikningum vegna endurgreiðslu virðisaukaskatts af sama tilefni. Sækja þurfti um frádrátt á tekjuskattsstofni samhliða umsókn um endurgreiðslu á virðisaukaskatti, í síðasta lagi 31. janúar árið 2011 vegna tekjuársins 2010. Sækja þarf um frádráttinn vegna tekjuársins 2011 í síðasta lagi 31. janúar árið 2012.