Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 27.4.2024 19:49:45


Ξ Valmynd

3.10  Frádráttur. Mótreikningur

Heimilt er að draga tapaða vexti frá fjármagnstekjum hafi skattur þegar verið greiddur af vöxtunum. Frádrátt má færa á framtali þess árs þegar sýnt er fram á að krafan sem vextirnir voru reiknaðir af fæst ekki greidd og má þá krafan ekki vera eldri en fimm ára. Frádráttinn má einungis færa á móti fjármagnstekjum. Ef frádrátturinn nýtist ekki að fullu á móti fjármagnstekjum yfirfærist heimildin til næsta framtals, í allt að fimm ár. Á sama hátt má draga frá aðrar tapaðar fjármagnstekjur sem skattur hefur verið greiddur af. Gera skal grein fyrir þessum frádrætti á eyðublaðinu Mótreikningur vegna tapaðra fjármagnstekna RSK 3.16, sjá leiðbeiningar á eyðublaðinu.

 

Fara efst á síðuna ⇑