6.3 Sérskattlagning barna sem misst hafa foreldri
Ef óskað er sérskattlagningar barns, sem misst hefur annað foreldri sitt eða bæði og ekki verið ættleitt, er ekki hægt að skila framtali barns á vefnum. Fylla þarf út og skila öðru framtalsformi sem prenta má út af vefnum (sjá hér) eða nálgast hjá Skattinum.
Launatekjur færast í kafla 1, en bætur, styrkir og aðrar greiðslur í kafla 2. Með barnaframtalinu skal skila síðum 3 og 4 af skattframtali einstaklinga, vegna eignatekna og vegna eigna og skulda. Ef fallist er á umsókn um sérskattlagningu skattleggjast allar tekjur samkvæmt 1. og 2. kafla eins og launatekjur barna, þ.e. 4% tekjuskattur og 2% útsvar á allar tekjur umfram frítekjumark (300.000 kr.). Fjármagnstekjur bera 22% tekjuskatt. Frítekjumark vegna fjármagnstekna er 300.000 kr.