FRAMTALSLEIÐBEININGAR 2016
1.7.1 Skilafrestir
Framtalsgerð 2016 verður með svipuðum hætti og síðustu ár. Skilafrestur er til þriðjudagsins 15. mars. Unnt er að sækja um aukinn frest til skila á þjónustuvef ríkisskattstjóra, skattur.is, og getur hann lengstur orðið til 20. mars. Framtal barns skal fylgja framtali framfæranda. Framtölum dánarbúa manna, er létust á árinu 2014 eða fyrr og var ekki lokið skiptum á í árslok 2014, skal skila í framtalsfresti lögaðila, sem er til 31. maí. Fagframteljendur hafa rýmri tímamörk en einstaklingar og lögaðilar.
Heimilt er að beita álagi á skattstofna ef framtali er ekki skilað á réttum tíma og eins ef framteljandi gefur rangar upplýsingar á framtali eða í fylgiskjölum.