FRAMTALSLEIÐBEININGAR 2015
8.3.4 Útreikningur barnabóta
Barnabætur eru tekjutengdar en ekki eignatengdar. Þær eru ákvarðaðar samkvæmt skattframtali og greiddar eftirá. Barnabætur er greiddar með börnum til 18 ára aldurs. Á árinu 2015 eru greiddar bætur með börnum sem fædd eru á tímabilinu 1997-2014. Við ákvörðun barnabóta 2015 er miðað við fjölskyldustöðu eins og hún er í þjóðskrá 31. desember 2014. Þannig fær sá sem hefur barnið hjá sér í árslok 2014 barnabæturnar og skiptir þá ekki máli hvort barnið hafi verið á framfæri hans allt árið eða hluta úr ári.
Óskertar barnabætur hjóna eru:
Með fyrsta barni | kr. |
194.081 |
Með hverju barni umfram eitt | kr. |
231.019 |
Viðbót vegna barna yngri en 7 ára | kr. |
115.825 |
Óskertar barnabætur einstæðra foreldra:
Með fyrsta barni | kr. |
323.253 |
Með hverju barni umfram eitt | kr. |
331.593 |
Viðbót vegna barna yngri en 7 ára | kr. |
115.825 |
Hjá hjónum og sambúðarfólki reiknast skerðing vegna tekna af samanlögðum tekjustofni* umfram kr. 4.800.000 og hjá einstæðu foreldri af tekjustofni umfram kr. 2.400.000. Sé um að ræða eitt barn skerðast barnabætur um 4% af tekjum umfram þessi mörk, ef börnin eru tvö um 6% og ef börnin eru þrjú eða fleiri um 8%. Viðbót vegna barna yngri en 7 ára skerðist um 4% með hverju barni, miðað við sömu tekjumörk.
Dæmi: Hjón með tvö börn, 5 og 10 ára.
Samanlagður tekjustofn hjóna | kr. |
5.500.000 |
Skerðingarmörk vegna tekna | kr. |
4.800.000 |
Stofn til skerðingar | kr. |
700.000 |
Óskertar barnabætur (194.081 + 231.019) | kr. |
425.100 |
Skerðing vegna tekna (6% af 700.000) | kr. |
-42.000 |
Viðbót vegna barna yngri en 7 ára | kr. |
115.825 |
Skerðing vegna tekna (4% af 700.000) | kr. | -28.000 |
Barnabætur verða | kr. |
470.925 |
Barnabætur skiptast jafnt á milli hjóna og verða kr. 235.463 hjá hvoru. Hjá sambúðarfólki sem á rétt á samsköttun reiknast barnabætur alltaf eins og hjá hjónum, hvort sem þau skila sameiginlegu framtali eða ekki.
Fyrirframgreiðsla barnabóta
Fyrirframgreiðslan nemur 50% af áætluðum barnabótum ársins og greiðist með tveimur jöfnum greiðslum, 1. febrúar og 1. maí. Við ákvörðun á fyrirframgreiðslu er tekið mið af upplýsingum úr staðgreiðsluskrá um launatekjur framfæranda. Við uppgjör í ágúst er fyrirframgreiðslan dregin frá barnabótum eins og þær eru ákvarðaðar í álagningu. Eftirstöðvar eru greiddar út 1. ágúst og 1. nóvember.