FRAMTALSLEIÐBEININGAR 2013
8.3.4 Útreikningur barnabóta
Barnabætur eru tekjutengdar en ekki eignatengdar. Þær eru ákvarðaðar samkvæmt skattframtali og greiddar eftirá. Barnabætur er greiddar með börnum til 18 ára aldurs. Á árinu 2013 eru greiddar bætur með börnum sem fædd eru á tímabilinu 1995-2012. Við ákvörðun barnabóta 2013 er miðað við fjölskyldustöðu eins og hún er í þjóðskrá 31. desember 2012. Þannig fær sá sem hefur barnið hjá sér í árslok 2012 barnabæturnar og skiptir þá ekki máli hvort barnið hafi verið á framfæri hans allt árið eða hluta úr ári.
Óskertar barnabætur hjóna eru:
Með fyrsta barni | kr. |
167.564 |
Með hverju barni umfram eitt | kr. |
199.455 |
Viðbót vegna barna yngri en 7 ára | kr. |
100.000 |
Óskertar barnabætur einstæðra foreldra:
Með fyrsta barni | kr. |
279.087 |
Með hverju barni umfram eitt | kr. |
286.288 |
Viðbót vegna barna yngri en 7 ára | kr. |
100.000 |
Hjá hjónum og sambúðarfólki reiknast skerðing vegna tekna af samanlögðum tekjustofni* umfram kr. 4.800.000 og hjá einstæðu foreldri af tekjustofni umfram kr. 2.400.000. Sé um að ræða eitt barn skerðast barnabætur um 3% af tekjum umfram þessi mörk, ef börnin eru tvö um 5% og ef börnin eru þrjú eða fleiri um 7%. Viðbót vegna barna yngri en 7 ára skerðist um 3% með hverju barni, miðað við sömu tekjumörk.
Dæmi: Hjón með tvö börn, 5 og 10 ára.
Samanlagður tekjustofn hjóna | kr. |
5.200.000 |
Skerðingarmörk vegna tekna | kr. |
4.800.000 |
Stofn til skerðingar | kr. |
400.000 |
Óskertar barnabætur (167.564 + 199.455) | kr. |
367.019 |
Skerðing vegna tekna (5% af 400.000) | kr. |
-20.000 |
Viðbót vegna barna yngri en 7 ára | kr. |
100.000 |
Skerðing vegna tekna (3% af 400.000) | kr. | -12.000 |
Barnabætur verða | kr. |
435.019 |
Barnabætur skiptast jafnt á milli hjóna og verða kr. 217.510 hjá hvoru. Hjá sambúðarfólki sem á rétt á samsköttun reiknast barnabætur alltaf eins og hjá hjónum, hvort sem þau skila sameiginlegu framtali eða ekki.
Fyrirframgreiðsla barnabóta
Fyrirframgreiðslan nemur 50% af áætluðum barnabótum ársins og greiðist með tveimur jöfnum greiðslum, 1. febrúar og 1. maí. Við ákvörðun á fyrirframgreiðslu er tekið mið af upplýsingum úr staðgreiðsluskrá um launatekjur framfæranda. Við uppgjör í ágúst er fyrirframgreiðslan dregin frá barnabótum eins og þær eru ákvarðaðar í álagningu. Eftirstöðvar eru greiddar út 1. ágúst og 1. nóvember.