FRAMTALSLEIÐBEININGAR 2013
1.5 Útreikningur á sjómannaafslætti
Niðurstöðutölur af Greinargerð um sjómannaafslátt RSK 3.13 skal færa í þennan lið. Annars vegar laun vegna sjómennsku og hins vegar sjómannadaga. Sá dagafjöldi sem færist á framtal er annað hvort (A) fjöldi daga á ráðningartíma eða (B) fjöldi lögskráningardaga, margfaldaður með 1,49. Sú tala sem lægri er færist á framtalið.
Þess ber að geta að fjöldi lögskráningardaga skv. skráningu Siglingastofnunar er nú áritaður á Greinargerð um sjómannaafslátt RSK 3.13. Sjá nánar í kafla 7.2.
Sjómannaafsláttur við álagningu 2013 (vegna sjómannslauna 2012) er 493 kr. á dag.