Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 17.11.2026 07:45:53


Ξ Valmynd

1.1.1.1  Fjölskyldumerking

Fjölskyldumerking

Fjölskyldumerking segir til um fjölskyldustöðu í Þjóðskrá 31. des. 2026. Fyrsta tákntalan segir til um hjúskaparstöðu, þ.e.:

1 einhleypingur,

2 einhleypingur (einstætt foreldri) með börn yngri en 18 ára,

3 hjón,

6 samskattað sambúðarfólk,

7 sambúðarfólk sem hafði rétt til samsköttunar á sl. ári en var ekki samskattað,

* nýhafin sambúð og

9 framteljandi sem misst hefur maka sinn á sl. ári.

Önnur tákntalan segir til um fjölda barna yngri en 7 ára og þriðja um fjölda barna á aldrinum 7-17 ára á framfæri framteljanda.
Fjölskyldumerkingin 2+1+3 þýðir þannig að framteljandinn er einstætt foreldri með eitt barn yngra en 7 ára og þrjú börn á aldrinum 7-17 ára á framfæri sínu.

Ef maki og börn eru búsett erlendis eiga þau ekki að koma inn í fjölskyldumerkingu og framteljandi fær þá fjölskyldumerkingu "1" einhleypingur.

Ef framteljandi, sem er giftur eða í sambúð og hann og börn eru búsett á Íslandi, en maki er búsettur erlendis, kemur fjölskyldumerking "2" einhleypingur með börn yngri en 18 ára. Í þeim tilvikum þarf að leggja fram staðfestar upplýsingar um tekjur maka svo hægt sé að ákvarða rétt til barnabóta.

 

Fara efst á síðuna ⇑