FRAMTALSLEIÐBEININGAR 2024
7.10.1 Dagvistun barna
Greiðslur fyrir dagvistun barna á að gera upp sem rekstrartekjur. Til frádráttar þessum tekjum má færa sannanlegan kostnað sem færa skal á rekstrarreikning (RSK 4.10 eða 4.11 eftir umfangi rekstrarins). Í stað þess að sundurliða kostnað á rekstrarreikningi er heimilt að færa hámarksfrádrátt samkvæmt mati ríkisskattstjóra sem hér segir:
Frádráttur á móti tekjum af fæðissölu í stað sannanlegs fæðiskostnaðar fyrir börn árið 2023:
- 266 kr. fyrir hvern seldan morgunverð eða síðdegishressingu, en 12 ára og eldri 345 kr.
- 528 kr. fyrir hvern seldan hádegis- eða kvöldverð, en 12 ára og eldri 687 kr.
Frádráttur má þó aldrei nema hærri fjárhæð en innheimt var fyrir sölu fæðis samkvæmt gjaldskrá.
Sem frádrátt í stað sannanlegs viðhaldskostnaðar húsnæðis og húsbúnaðar, kostnaðar vegna hreinlætisvara, föndurvara, bóka o.þ.h. má færa 25% af tekjum, öðrum en tekjum vegna fæðissölu, en þó aldrei hærri fjárhæð en innheimt var vegna þessara liða samkvæmt gjaldskrá.
Niðurstöður af rekstrarreikningi færast í reiti 24 og 62 á framtali eftir því sem við á.