FRAMTALSLEIÐBEININGAR 2023
7.13 Skattaleg heimilisfesti
Með skattalegri heimilisfesti eru námsmanni tryggð réttindi til að vera skattlagður eins og hann hefði verið heimilisfastur hér á landi allt árið. Þetta þýðir að við skattlagningu er tekið tillit til þess skattafsláttar og bóta sem hann ætti rétt á ef lögheimili hans hefði verið hér á landi. Tekjur og eignir erlendis hafa áhrif á skattlagninguna. Barnabætur eða hliðstæðar greiðslur erlendis koma til lækkunar á barnabótum hér á landi. Beiðni um skattalega heimilisfesti undanskilur ekki námsmann frá skattskyldu og framtalsskyldu í búsetulandi.
Fylla þarf út eyðublað RSK 3.26 vegna óskar um skattalega heimilisfesti.
Nánar: