Leiđbeiningar um rafrćn skil, sótt 22.11.2024 00:48:57


Ξ Valmynd

6.4  Breyting skráningar raunverulegs eiganda - Félög í atvinnurekstri

  1. Skráningaraðili skráir sig inn með rafrænum skilríkjum á þjónustuvef Skattsins – www.skattur.is

 

  1. Í fyrstu valmyndinni velur skráningaraðili hnappinn “Félög sem ég tengist”

 

 

  1. Skráningaraðili smellir á hnappinn „Innskráning á vef félagsins“ í línu félagsins sem á að breyta skráningu raunverulegra eigenda fyrir.

 

  1. Þegar komið er inn á þjónustuvef félagsins er smellt á valmyndina “Almennt” og þaðan á “Raunverulegur eigandi”

 

 

  1. Skráningaraðili velur hnappinn “Breyta skráningu”

 

 

  1. Hér birtast upplýsingar úr fyrirtækjaskrá um stofnendur / stjórn / prókúruhafa ofl. Skráningaraðili fyllir inn tölvupóstfang sitt og velur svo hnappinn “Halda áfram”

 

 

 

  1. Til að fjarlægja fyrri eiganda þarf að smella á stækkunarglerið hægra megin við eigandann og velja “Afskrá hnappinn” neðst á síðunni.

 

 

 

 

 

  1. Til að bæta við nýjum eigendum velur skráningaraðili hnappinn “Bæta við eiganda” og fyllir inn allar upplýsingar um nýjan eiganda. Sjá skilgreiningar á tegundum eignarhalds.

 

  1. Þegar fyrri eigendur hafa verið fjarlægðir og nýir eigendur skráðir inn, velur skráningaraðili hnappinn “Senda í undirritun”.

 

 

  1. Þeir aðilar sem þurfa að undirrita tilkynninguna þurfa þá að fara inn á sína persónulegu þjónustusíðu á www.skattur.is og undirrita tilkynninguna svo að hún taki gildi. Þetta er gert með því að skrá sig inn á þjónustusíðuna og velja myndina “Þú átt skjöl til undirritunar”.

 

 

 

 

 

 

 

 

Fara efst á síđuna ⇑