FRAMTALSLEIÐBEININGAR 2020
1.6 Fenginn arfur
Undir þessum lið eru áritaðar á framtalið upplýsingar um arf frá Fjársýslu ríkisins. Framteljandi þarf að yfirfara þær og eftir atvikum lagfæra eða bæta við.
Gera skal grein fyrir fengnum arfi í þessum lið, þ.m.t. fyrirframgreiddum arfi. Í fremsta reitinn skal tilgreina kennitölu arfláta. Í næsta reit skal færa heildarfjárhæð fengins arfs og í síðasta reitinn skal færa greiddan erfðafjárskatt. Staðfesting á greiddum erfðafjárskatti, vegna arfs erlendis frá, þarf að fylgja framtalinu.