1.3 Umsókn um lækkun vegna framfærslu ungmenna
Í þessum lið framtals er hægt að sækja um ívilnun samkvæmt 3. og 4. tl. 65. gr. skattalaganna hafi framteljandi á framfæri ungmenni sem eru við nám eða hafa af öðrum ástæðum það lágar tekjur að þær duga ekki til framfærslu. Hér er fyrst og fremst átt við ungmenni á aldrinum 16-21 árs. Sé ungmennið í skóla þarf að tilgreina nafn skóla. Veiti námið rétt til námslána kemur ívilnun ekki til álita. Við ákvörðun á ívilnun er við það miðað að ungmenni hafi ekki haft nægjanlegt ráðstöfunarfé á árinu og miðast því lækkun á tekjuskattsstofni framfærenda við tekjur þess. Tilgreina þarf tekjur ungmennis í dálk 528 og framtal ungmennis þarf að hafa borist. Nægilegt er að annað hjóna eða samskattaðra einstaklinga fylli út þennan lið. Ívilnunin skiptist á milli framfærenda.
Sótt er um lækkun vegna menntaskólanema. Tekjur námsmannsins á árinu 2019 voru kr. 300.000. Ívilnun reiknast þannig:
Hámarksívilnun
|
kr.
|
390.000
|
Frá dregst 1/3 af tekjum námsmannsins eða 1/3 af 300.000
|
kr.
|
-100.000
|
Ívilnun verður
|
kr.
|
290.000
|
Ívilnun skiptist jafn á milli hjóna og sé annað hjóna tekjulaust færist öll fjárhæðin til lækkunar hjá hinu.