FRAMTALSLEIÐBEININGAR 2025
8.3.4 Útreikningur barnabóta
Barnabætur eru tekjutengdar en ekki eignatengdar. Þær eru ákvarðaðar samkvæmt skattframtali og greiddar eftirá. Barnabætur er greiddar með börnum til 18 ára aldurs. Á árinu 2025 eru greiddar bætur með börnum sem fædd eru á tímabilinu 2007-2024. Við ákvörðun barnabóta 2025 er miðað við fjölskyldustöðu eins og hún er í þjóðskrá 31. desember 2024. Þannig fær sá sem hefur barnið hjá sér í árslok 2024 barnabæturnar og skiptir þá ekki máli hvort barnið hafi verið á framfæri hans allt árið eða hluta úr ári. Ef samið hefur verið um skipta búsetu barns greiðast hálfar barnabætur vegna þess barns til hvors foreldris fyrir sig, m.v. fjölskyldustöðu viðkomandi foreldris.
Óskertar barnabætur hjóna eru:
Með hverju barni | kr. |
345.000 |
Viðbót vegna barna yngri en 7 ára (fædd 2018 - 2024) | kr. |
130.000 |
Óskertar barnabætur einstæðra foreldra:
Með hverju barni | kr. |
514.500 |
Viðbót vegna barna yngri en 7 ára (fædd 2018 - 2024) | kr. |
130.000 |
Skerðing vegna tekna reiknast þannig: Af tekjustofni* umfram 11.688.000 kr. hjá hjónum og sambúðarfólki og umfram 5.844.000 kr. hjá einstæðu foreldri skerðast barnabæturnar um 4% með öllum börnum óháð fjölda þeirra. Flöt 4% skerðing fyrir eitt barn eða fleiri (ekki 4% fyrir eitt barn, 8% fyrir tvö börn o.s.frv.!).
Viðbótarbarnabætur vegna barna yngri en 7 ára skerðast um 4%, með hverju barni, af tekjustofni umfram 11.688.000 kr. hjá hjónum og sambúðarfólki og umfram 5.844.000 kr. hjá einstæðu foreldri. (8% skerðing fyrir tvö börn, 12% fyrir þrjú börn o.s.frv.).
* Tekjustofn til útreiknings barnabóta er frábrugðinn tekjuskattsstofni að því leyti að allar fjármagnstekjur eru hér meðtaldar. Laun frá alþjóðastofnunum sem ekki eru skattlögð koma inn í tekjustofn til útreiknings á barnabótum.
Dæmi: Hjón með tvö börn, 5 og 10 ára.
Samanlagður tekjustofn hjóna | kr. |
14.000.000 |
Skerðingarmörk vegna tekna | kr. |
11.688.000 |
Stofn til skerðingar | kr. |
2.312.000 |
Óskertar barnabætur (345.000 + 345.000) | kr. |
690.000 |
Skerðing vegna tekna (4% af 2.312.000) | kr. |
-92.480 |
Viðbót vegna barna yngri en 7 ára | kr. |
130.000 |
Skerðing vegna tekna (4% af 2.312.000) | kr. | -92.480 |
Barnabætur verða | kr. |
635.040 |
Barnabætur skiptast jafnt á milli hjóna og verða kr. 317.520 hjá hvoru. Hjá sambúðarfólki sem á rétt á samsköttun reiknast barnabætur alltaf eins og hjá hjónum, hvort sem þau skila sameiginlegu framtali eða ekki.
Fyrirframgreiðsla barnabóta
Fyrirframgreiðslan nemur 50% af áætluðum barnabótum ársins og greiðist með tveimur jöfnum greiðslum, 1. febrúar og 1. maí. Við ákvörðun á fyrirframgreiðslu er tekið mið af upplýsingum úr staðgreiðsluskrá um launatekjur framfæranda. Við uppgjör í júní er fyrirframgreiðslan dregin frá barnabótum eins og þær eru ákvarðaðar í álagningu. Eftirstöðvar eru greiddar út 1. júní og 1. október.