Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 18.1.2025 12:11:50


Ξ Valmynd

1.8.8  Erlendir bankareikningar og peningalegar eignir á sundurliðunarblaði


Á sundurliðunarblaðinu með skattframtali 2025 er að finna upplýsingar sem borist hafa erlendis frá um erlenda bankareikninga og aðrar erlendar peningalegar eignir, t.d. erlend hlutabréf eða verðbréf.

Þarna getur einnig verið um að ræða inneign í séreignarlífeyrissjóði, en slíka inneign á ekki að færa á skattframtal.

Listinn er hugsaður til áminningar fyrir framteljendur um að færa erlendar eignir sínar inn á skattframtal sitt.

Tekið skal fram að hér er um að ræða upplýsingar sem bárust um slíkar erlendar eignir sem framteljandi átti í árslok 2023 (ekki 2024).

Framteljendur þurfa að yfirfara þennan lista og færa eftir atvikum handvirkt inn á framtalið þær erlendu eignir sem þeir áttu í árslok 2024 og fjármunatekjur af þeim á árinu 2024.

Athugið að listinn er ekki endilega tæmandi upptalning á þeim erlendu eignum sem kunna að vera í eigu framteljanda í árslok 2024!

Erlenda bankareikninga (ásamt fjárhæð eignar í árslok 2024 og fjárhæð vaxta á árinu 2024) skal færa í kafla 3.2 á fjármagnstekjuhlið.

Erlend verðbréf (ásamt fjárhæð eignar í árslok 2024 og fjárhæð vaxta á árinu 2024) skal færa í kafla 3.3 á fjármagnstekjuhlið.

Erlend hlutabréf (ásamt fjárhæð eignar í árslok 2024 og fjárhæð arðs á árinu 2024) skal færa á eyðublað RSK 3.19.

Inneign í séreignarlífeyrissjóði skal ekki færa á skattframtalið.

 

Fara efst á síðuna ⇑