FRAMTALSLEIÐBEININGAR 2024
1.7.1 Skilafrestir
Framtalsgerð 2024 verður með svipuðum hætti og síðustu ár. Skilafrestur er til fimmtudagsins 14. mars. Ekki verður um aukinn skilafrest að ræða. Framtal barns skal fylgja framtali framfæranda. Framtölum dánarbúa manna, er létust á árinu 2022 eða fyrr og var ekki lokið skiptum á í árslok 2022, skal skila í framtalsfresti lögaðila, sem er til 31. maí. Fagframteljendur (t.d. endurskoðendur og bókarar) hafa rýmri tímamörk en einstaklingar og lögaðilar.
Heimilt er að beita álagi á skattstofna ef framtali er ekki skilað á réttum tíma og eins ef framteljandi gefur rangar upplýsingar á framtali eða í fylgiskjölum.